-Saumaklúbbur með meiru-
09.09.2008 22:30:02 / thesjukkur

Helgin!!

Hæhó núna er komið að því, loksins er hittingur, og er hann núna um helgina! :haha: Stefnan er að við borðum saman eitthvað gott take away og skellum okkur síðan á skrallið og málum bæinn rauðann 8)
Ég er búin að bjóða mig og riiiisaaaa stóra einbýlishúsið mitt fram og munum við hittast heima hjá mér, á laugardaginn, mér datt í hug klukkan ca 20, en ef að þið viljið hittast á einhverjum öðrum tíma þá endilega látið það koma fram í kommentum skvíses :!:

Takk og bæ
Súsanna háskólapía með meiru :lol:


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 13:05:33 / thesjukkur

Saumó tími!

Sælar dömur...
Jæja, núna er komin tími til að fara að hittast og skemmta okkur saman.
Ég er alveg tilbúin til að halda saumó heima hjá mér laugardaginn 5 júní eða á föstudeginum 11. júlí.

Eruð þið ekki til í að hittast?
Endilega tjáið ykkur;)
Kv. Dagný

» 10 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 08:18:22 / thesjukkur

Jæja stelpur!!

þá er komið að því að ég verði 25 en ætla nú reindar að halda upp á það aðeins á undan áætlun en jæja ég ætla að halda upp á það 30 maí og ykkur er boðið heim til mín :) ekki búin að ákveða tíma en ég læt ykkur vita þannig að Sjáumst eldhressar föstudaginn 30 maí

Oddný H

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 09:31:54 / thesjukkur

til þess að láta ykkur brosa;)

Muna að nota sólarvörn..


Og muna að passa dú-ið;)


Og hehe..



Kv. Dagný - Voff voff


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 23:13:31 / thesjukkur

Þakkir

Stelpur mínar...
Takk æðislega fyrir skemmtilegt kvöld.. það var æðislega gaman og við verðum að gera einhvað mjög fljótt aftur...
Hver á að plana næst?
MAÐUR SPYR SIG:$
Ég er ennþá að jafna mig eftir súkkulaði-kökuna eða toppinn eða hvað sem þetta kallast.. Nammi nammi nammi namm..
Kv. Dagný


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 14:57:43 / thesjukkur

Myndir Myndir

Sælar...
Ég er búin að setja myndir inn á síðuna okkur undir tengiliðinum "Okkar myndir". Þetta eru ekki allar myndirnar sem ég á af okkur en ég ætla að vinna í því að setja þær allar inn. Þetta er svona smá MiX.. Það er alltaf gaman að því..
Sjáumst kl 18. á Ítalíu..

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 22:08:45 / thesjukkur

Hittingur!!!

Loksins erum við stelpurnar búnar að ákveða að hittast, enda kominn tími til!! :d
Allavegna varð fimmtudagurinn 3. apríl fyrir valinu og getum við þá farið út að borða og séð svo til með restina af kvöldinu, kannski kíkt á Sólon í gítarstemningu ef að fólk er í stuði ;)

Hvar langar ykkur að borða??


Komment Takk!
Súsanna, Bryndís og Viktoría

Ps. Ef að þið eruð að vinna þá hafið þið mánuð til þess að redda vaktinni! Ekkert beil eins og seinast takk fyrir pent :evil:

» 33 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 00:50:17 / thesjukkur

Jæja hvernig er það eigum við ekki að fara að hittast á nýju ári!

Já ég held það sé tími til komin að fara að hittast og var að spá hvort þið væruð eitthvað fyrir að hafa hitt kynið með svona til tilbreytingar hehe kanski borða saman og kíkja eitthvað út eða hvað finnst ykkur :lol:

Jæja segið ykkar skoðun hvað þið viljið gera, hvenar og hvort ykkur lýst eitthvað á að hafa hinn helmingin með hehe :lol:

Kveðja
Oddný H

» 8 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 06:48:45 / thesjukkur

Sælar!!

 

 

 

Halló Halló ég var að fá mér myspace,endilega addið mér á listann ykkar.

 

www.myspace.com/oddnyjons

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 17:49:19 / thesjukkur

2008!

Sælar Dömur.

Ég ætla að byrja á því að óska ykkur gleðilegra jóla og gleðilegt ár.

Hvenar eigum við að hittast næst? það verður nú að fara að gerast bráðlega.

Endilega komið með tillögur um hvar, hvenar og klukkan hvað.

Við verðum nú að mæta allar, það er nefnilega komið ár síðan að við útskrifuðumst;)

Ég er til hvenar sem er.

Kv. Dagný Ó

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 16:19:53 / thesjukkur

Jólaferðin

Þá er það ákveðið mánudaginn 17 des munum við hittast á sólon klukkan 17:30.

Þær sem hafa staðfest komu sína eru Oddný helga,súsanna,Bryndís,Dagný,oddný jóns.

Ekkert hefur heyrst frá söndru ég er ekki með númerið hennar gott væri ef einhver gæti tékkað á henni og reynt að fá hana til að mæta.

það er skylda að mæta með jólaskapið hlakka til að sjá ykkur!

Kveðja Oddný.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 16:14:26 / thesjukkur

Jólaferðin ...

 

 Allir sem komast 17 Des látið vita,það fer að styttast í þessa ferð,það yrði frekar hallærislegt ef hún myndi falla niður annað árið í röð...

 

verið duglegar að kommenta Kveðja Oddný Jóns!

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 20:06:22 / thesjukkur

Hin Árlega Jólaferð...

 

 

Kæru sjúkkur núna styttist í jólin(rúmar 6 vikur)

Hvað finnst ykkur um að kíkja í okkar árlegu bæjarferð (átti að vera í fyrra en allir voru of busy til að komast...:(  

 

Planið væri  að kíkja í búðir og fara saman út að borða,Tilgangur ferðarinnar er að ná sér í smá jólastemmingu fyrir jólin...:)

 Núna verður kosið um eftirfarandi dagsetningar.

 Þriðjudagurinn 11 Des

  Fimmtudagurinn 13 des

  Föstudagurinn 14 des

 

  Ástæðan fyrir að ég set þessa færslu svona snemma er sú að núna hefur engin afsökun fyrir að komast ekki.!!!

Þið hafið mánaðar fyrirvara  það merkir bara eitt núna þurfi þið að taka upp vaktarbækurnar ykkar og kjósa dagsetningu sem hentar ykkur !!

Kær Jólakveðja Oddný jóns!!

  p.s verið duglegar að kjósa annars endi þið allar í jólakettinum :)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 10:08:54 / thesjukkur

11. nóvember..

Sælar.

Þann 11. nóvember á hún Susanna okkar afmæli og að því tilefni viljum við bjóða henni til lukku með daginn..

Sandra K og Susanna.
Kær kveðja, þínar sjúkkur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 18:57:28 / thesjukkur

Myndir!

Setti inn 2 hópmyndir sem Súsanna sendi mér :)

Oddný


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
RSS tengill